Ofbeldi og vanræksla gagnvart börnum geti aukist í ástandi sem þessu

Heiða Björg Pálmadóttir forstjóri Barnaverndarstofu var í morgunþættinum Bítinu í morgun

31 mar. 2020

Faraldur kórónuveirunnar hefur orðið til þess að mun fleiri halda sig nú heima við en alla jafna og getur það haft ýmis áhrif á heimilislíf fjölskyldna. Heiða segir sérstaka ástæðu til þess að hafa áhyggjur af ofbeldi og vanrækslu gagnvart börnum á tímum sem þessum. „Alltaf þegar það kemur einhver krísa hjá fjölskyldum þá er ástæða til þess að hafa áhyggjur af börnunum. Kvíði, álag, streita hjá foreldrum eykur líkurnar á ofbeldi og vanrækslu.“ Heiða leggur áherslu á að ef fólk hefur áhyggjur af barni þá er einfaldasta leiðin að tilkynna það til 112. 112 tekur við tilkynningum fyrir barnaverndarnefndir og kemur þeim áfram og barnaverndarnefndir eru með bakvaktir allan sólarhringinn og geta alltaf gripið inn í ef þörf er á.

Hér er hægt að lesa fréttina sem birtist á Vísi í dag þann 31. mars 2020.  

 

Tilkynningum fjölgaði í hruninu

Það hafi til að mynda sést í bankahruninu þegar tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði verulega.

„Við sáum það víða um heim þar sem veiran var komin áður en hún var komin til Íslands að þar eru vísbendingar um gríðarlega aukningu í heimilisofbeldi og öðru slíku.“

Þessa dagana séu mörg börn meira einangruð heima hjá sér en í venjulegu árferði.

„Við höfum börnin ekki nema að litlu leyti í skóla, sum börn eru ekki í skóla, fólk hittir minna fjölskyldumeðlimi, vini og ættingja en það þýðir að börn eru rosalega einangruð. Við sjáum vísbendingar um það núna að tilkynningum til barnaverndar sé að fækka verulega en við höfum áhyggjur af því að þeim eigi eftir að fjölga.“

Heiða segir að það geti reynt meira á fjölskylduaðstæður þegar börnin eru mikið heima.

Bara það að vera með börnin heima allan daginn að reyna að sinna fullri vinnu eða lenda í því að vera að missa vinnuna og hafa áhyggjur af framfærslu fjölskyldunnar er augljóslega streituvaldur hjá fjölskyldum og það skiptir ákaflega miklu að barnaverndin geti gripið inn í ef þörf er á.“

Allir þurfi að vera vakandi

Mikilvægt sé að allir, þar á meðal nágrannar, vinir, ættingjar og skólar séu núna gríðarlega vakandi fyrir aðstæðum barna.

„Ef fólk hefur áhyggjur af barni þá er einfaldasta leiðin að tilkynna það til 112. 112 tekur við tilkynningum fyrir barnaverndarnefndir og kemur þeim áfram og barnaverndarnefndir eru með bakvaktir allan sólarhringinn og geta alltaf gripið inn í ef þörf er á.“

Að sögn Heiðu komu ellefu þúsund tilkynningar inn á borð barnaverndar á síðasta ári og var töluverður fjöldi þeirra vegna vanrækslu. Um 120 barnaverndarstarfsmenn séu að störfum um allt land og að engin skerðing hafi verið á starfsemi nefndanna vegna kórónuveirunnar.

Hún hvetur fólk til þess að senda inn tilkynningar ef ástæða er til.

„Og líka bara foreldrar sem ströggla og þurfa aðstoð að hika ekki við að hafa samband við barnaverndarnefndirnar og fá stuðning.“


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica