Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda!

Tilkynningum fjölgar um fimm prósent fyrstu 6 mánuði 2013 miðað við fyrstu 6 mánuði 2012

10 sep. 2013

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2012 og 2013. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2012 og 2013

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um tæplega 5% fyrstu sex mánuði ársins 2013 samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2012. Fjöldi tilkynninga var 4.264 fyrstu sex mánuði ársins 2013, en 4.066 fyrir sama tímabil árið á undan.

Fleiri tilkynningar bárust um drengi en stúlkur, en hlutfall tilkynninga vegna drengja var 53,9% fyrst sex mánuði ársins 2013. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um rúmlega 2% en fjölgunin var rúmlega 11% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna vanrækslu eða 36,6% tilkynninga fyrstu sex mánuði ársins 2013. Fyrir sama tímabil árið á undan voru flestar tilkynningar vegna áhættuhegðunar barns eða 40,5%. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi fyrstu sex mánuði ársins 2013 var 26,9%, en 23,4% fyrir sama tímabil árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu hækkaði úr 0,5% fyrstu sex mánuði ársins 2012 í 0,8% fyrstu sex mánuði ársins 2013.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 44 umsókn um MST fyrstu sex mánuði ársins 2013, sem er fjölgun frá árinu á undan, en þá bárust 31 umsókn fyrir sama tímabil. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.

Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu sex mánuði ársin 2013 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 29 fyrstu sex mánuði ársins 2013 en 38 fyrir sama tímabil árið á undan.

Umsóknum um fósturforeldra fjölgaði úr 57 í 74 á umræddu tímabili. Fjölgunin var mest í umsóknum um tímabundið fóstur. 

Hægt er að sjá skýrsluna hér!

 


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica