Samanburður á fyrsta ársfjórðungi 2010 og 2011

27 jún. 2011

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna á fyrsta ársfjórðungi yfirstandandi árs miðað við sama tímabil árið 2010. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2010 og 2011.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um tæplega 13% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 samanborið við fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. Fjöldi tilkynninga var 2.148 fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 en 2.466 fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 43,6% tilkynninga fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, en 44,7% fyrstu 3 mánuði ársins 2010. Alls voru 31,9% tilkynninga vegna vanrækslu á börnum fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, en 32,8% fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi var 23,5% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, en 21,9% fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. Hlutfall tilkynninga vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 1,0% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, en 0,5% fyrstu þrjá mánuði ársins 2010.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 19 umsóknir um Fjölkerfameðferð (MST) fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, en 24 umsóknir fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. MST snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.

Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 28 fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 en 48 fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fjölgaði úr 31 í 46 á umræddu tímabili.

Hér má sjá skýrsluna í heild og sundurliðun á samanburði vegna tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar varðandi umsóknir um þjónustu á vegum Barnaverndarstofu fyrir umrætt tímabil.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica