Meðferðarþörf barna sem glíma við afleiðingar áfalla og eru til umfjöllunar hjá barnaverndarnefndum

5 okt. 2010

Þann 6. september síðasliðinn boðaði Barnaverndarstofa til hálfs dags námskeiðs með bandaríska sálfræðingnum Dr. Monicu Fitzgerald. Námskeiðið var ætlað starfsmönnum meðferðarúrræða á vegum stofunnar og starfsmönnum barnaverndarnefnda. Dr. Fitzgerald er aðstoðar prófessor við Denver háskóla í Colorado fylki en starfar jafnframt við hið þekkta Kempe Center sem er miðstöð fyrir forvarnir og meðferð barna sem hafa orðið fyrir misnotkun eða vanrækslu. Hún þjálfar fagfólk í beitingu gagnreyndra aðferða svo sem áfallamiðaðri hugrænni atferlismeðferð (Trauma Focused Cognitive Behavioral Therapy – TF-CBT). Dr. Fitzgerald var stödd hér á landi vegna tveggja daga þjálfunarnámskeiðs í TF-CBT sem hún hélt á vegum Félags um hugræna atferlismeðferð. Þess má geta að Barnahús hefur undanfarið ár innleitt TF-CBT undir handleiðslu innlends sérfræðings.

Dr. Fitzgerald og samstarfsfólk hennar hefur einnig sinnt námskeiðahaldi og ráðgjöf við starfsfólk í velferðarþjónustu og barnavernd sem fjallar um mál barna sem glíma við afleiðingar langvarandi álagsaðstæðna eða áfalla. Hér getur verið um að ræða misnotkun, heimilisofbeldi, áfallatengd sorgarviðbrögð, vanrækslu eða annað. Áhersla er lögð á að viðkomandi starfsfólk hafi þekkingu á vægi slíkra atburða í þeim heildarvanda barns sem er til umfjöllunar og getur leitt til þess að barn er vistað utan heimilis. Einnig að til staðar sé þekking á viðurkenndum (gagnreyndum) aðferðum í meðferð áfalla og hvaða fagaðilar hafa þjálfun í slíkum aðferðum. Síðast en ekki síst er lögð áhersla á að foreldrar, fósturforeldrar eða aðrir umönnunaraðilar barns með flókinn vanda séu upplýstir um vægi áfallaatburðanna og geri sér betur grein fyrir áhrifunum á hegðun og þarfir barnsins. Með þessu móti aukast líkur á öryggi og stöðugleika sem auk þess að vera grunnatriði í umönnun og uppeldi er forsenda sérhæfðrar meðferðar af þessu tagi.

Á námskeiði Dr. Fitzgerald á Barnaverndarstofu var fjallað um ofangreint efni. Einnig var fjallað um mikilvægi gagnreyndra aðferða í meðferð eins og TF-CBT. Athygli vakti að í TF-CBT er lögð mikil áhersla á þátt foreldra í meðferð barnanna (en það á einnig við MST – fjölkerfameðferð – sem er í flokki gagnreyndra aðferða). Á námskeiðinu m.a. unnið útfrá eftirfarandi spurningum:

1.Hverskonar áfallareynslu er mikilvægt að einblína á og hvernig metum við vægi hennar í samhengi við þann heildarvanda barns sem er til umfjöllunar hverju sinni?

2.Spurningar sem koma upp þegar barn hefur orðið fyrir alvarlegri/endurtekninni áfallareynslu og aðstæður barns eru þannig að þörf er talin fyrir vistun utan heimilis, svo sem:
a.Hvaða þarfir eru í fyrirrúmi þegar barn er sem orðið hefur fyrir áföllum er tekið af heimili?
b.Mat á þörfum barns þegar vistunar- eða fósturúrræði er þannig staðsett að möguleiki á sérhæfðri áfallameðferð er síður til staðar?

3.Hvar í verklaginu þarf að efla skimun fyrir áfallareynslu og hvenær er þörf á sérhæfðari greiningu og sérhæfðri áfallameðferð, eins og til dæmis TF-CBT?

Barnaverndarstofa mun halda áfram með þessa umfjöllun innan sinna raða og með barnarverndarnefndum. Hér má sjá glærur sem Dr. Fitzgerald notaði á námskeiðinu.

Nánari upplýsingar um Monica M. Fitzgerald:
Monica M. Fitzgerald, Ph.D., is a licensed clinical psychologist and Assistant Professor at The University of Colorado-Denver in the Department of Pediatrics in the School of Medicine. She is the Director of Training and Evaluation in the Child Trauma Program and primarily works on Denver-Kempe Childhood Trauma Collaborative projects with the Denver Department of Human Services. This Collaborative is part of the National Child Traumatic Stress Network, which aims to raise the quality of mental health care for trauma-exposed children and their
families. Dr. Fitzgerald’s research focuses on studying the impact of child abuse and trauma exposure on children’s psychosocial and emotional adjustment, family communication patterns, and the dissemination and implementation of evidence supported, trauma-informed interventions in community settings. Dr. Fitzgerald is an expert trainer in several evidence supported treatments, including TF-CBT and AF-CBT and regularly conducts trainings, consultation, and evaluation nationally on these models. She is Board member of the American Professional Society on the Abuse of Children (APSAC). Dr. Fitzgerald maintains a clinical practice and provides trauma-focused treatment youth and families who have experienced abuse or other trauma.

Nánari upplýsingar umTrauma Focused Cognitive Behavioral Therapy:
What is Trauma-Focused Cognitive Behavioral Therapy (TF-CBT)? TF-CBT is a short-term, evidence-based treatment for children ages 3 to 18 years of age who have experienced trauma (e.g., child abuse, domestic violence, traumatic grief, and other traumatic events) and their caregivers. This components-based psychotherapy model incorporates trauma-sensitive interventions with cognitive behavioral, family, and humanistic principles.TF-CBT is empirically supported for use with youth impacted by trauma and co-occurring mental health problems. It
is designated a Model Program by the SAHMSA National Child Traumatic Stress Network (NCTSN) and it has been given the highest scientific rating as a Well-Supported-Effective Practice by the California Evidence-Based Clearinghouse for Child Welfare (http://www.cachildwelfareclearinghouse.org). Clinical research shows that TF-CBT significantly reduces children’s symptoms of PTSD as well as improves overall mental health in children and caregivers.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica