Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga - 20 ára starfsafmæli
Föstudaginn 26. maí 2017 fagna Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga, 20 ára starfsafmæli. Af því tilefni er opið hús fyrir samstarfsaðila okkar og velunnara í húsnæði Stuðla, að Fossaleyni 17 frá 14:00-16:00.
Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga tók til starfa fyrir rétt rúmum 20 árum. Starfsemin skiptist í tvær deildir, meðferðardeild og lokaða deild. Á þeim 20 árum sem eru liðnin frá stofnun Stuðla hefur margt breyst í meðferðarmálum og starfsemin þróast í takt við reynslu og þekkingu á sviðinu. Megin áherslan hefur þó alltaf verið að bæta líf og aðstoða skjólstæðinga okkar að fóta sig í lífinu á ný. Í dag erum við að fagna því og minna á það góða starf sem unnið er á Stuðlum.