Hópmeðferð fyrir börn sem hafa búið við ofbeldi á heimili
Barnaverndarstofa hefur gert samning við sálfræðiþjónustuna Blær ehf. um hópmeðferð fyrir börn sem búa við þær aðstæður að ofbeldi hefur verið þáttur í heimilislífi þeirra. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs þar sem veitt verður sérhæfð þjónusta í málefnum barna og unglinga 6-18 ára er orðið hafa vitni að heimilisofbeldi og/eða orðið fyrir líkamlegu ofbeldi sjálf. Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem alast upp við ofbeldi á heimili ganga í gegnum röð áfalla sem geta haft margvíslegar afleiðingar s.s. haft áhrif á tilfinningalega líðan og tilfinningastjórn, tengslamyndun, vitsmunaþroska og sjálfsmynd. Afleiðingar ofbeldis koma jafnvel fram í margskonar heilsufarsvanda mörgum árum eftir að ofbeldið á sér stað, t.d. vegna veikingar ónæmiskerfis. Þjónustan felst í hópmeðferð þar sem áfallamiðuð hugræn atferlismeðferð er lögð til grundvallar auk félagssálfræðilegra þátta. Sambærileg hópmeðferð hefur verið í boði erlendis um nokkurra ára skeið s.s. á vegum „Alternativ til Vold“ í Noregi sjá nánar á slóðinni http://www.atv-stiftelsen.no/index.cfm?kat_id=1Barnaverndarstofa tekur á móti tilvísunum frá barnaverndarnefndum sveitarfélaga.