Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrstu þrjá mánuði áranna 2012 og 2013

6 jún. 2013

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2012 og 2013. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2012 og 2013

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um tæplega 13% fyrstu þrjá mánuði ársins  2013 samanborið við fyrstu þrjá mánuði ársins 2012. Fjöldi tilkynninga var 2.121 fyrstu þrjá mánuði ársins 2013, en 1.879 fyrir sama tímabil árið á undan.

Fleiri tilkynningar bárust um drengi en stúlkur, en hlutfall tilkynninga vegna drengja var 53,1% fyrst þrjá mánuði ársins 2013. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um rúmlega 7% en fjölgunin var rúmlega 26% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna vanrækslu eða 35,9% tilkynninga fyrstu þrjá mánuði ársins 2013. Fyrir sama tímabil árið á undan voru flestar tilkynningar vegna áhættuhegðunar barns eða 37,5%. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi fyrstu þrjá mánuði ársins 2013 var 27,9%, en 25,4% fyrir sama tímabil árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu hækkaði líttillega úr 0,5% fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 í 0,6% fyrstu þrjá mánuði ársins 2013.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 18 umsókn um MST fyrstu þrjá mánuði ársins 2013, einni fleiri en fyrir sama tímabil árið á undan. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.

Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu þrjá mánuði ársin 2013 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 17 fyrstu þjá mánuði ársins 2013 en 21 fyrir sama tímabil árið á undan.

Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fækkaði úr 29 í 24 á umræddu tímabili. Fækkun var mest í umsóknum um tímabundið fóstur. 

Hér er hægt að sjá skýrsluna í heild


Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica