• articleimage

Sumarhátíðir - Sýnum ábyrgð!

Consectetur adipiscing elit

20 apr. 2012

Miðvikudaginn 23. maí nk heldur Náum áttum - samstarfshópur um fræðslu- og forvarnir síðasta fund vetrarins á Grand hótel kl. 08.15 - 10.00. Fjallað verður um sumarhátíðir á Íslandi, framkvæmd þeirra og ábyrgðina sem fylgir hátíðarhaldi eins og þjóðhátíð, bæjarhátíð, útihátíð eða hestamóti. Farið verður yfir atriði eins og markmið þeirra, regluverk og viðbúnað sveitarfélags og annarra mótshaldara.

Fyrirlesarar eru þrír: Eyrún Jónsdóttir frá neyðarmóttökunni fjallar um fórnarkostnaðinn, Rúnar Halldórsson félagsráðgjafi ræðir um útihátíðir á Suðurlandi og viðbúnað sveitarfélaga og Tómas Guðmundsson frá Akranesstofu fjallar um hátíðina "Írskir dagar" sem haldnir eru á Akranesi.

Að loknum erindum eru pallborðsumræður og í pallinn bætast þá Stefán Eiríksson lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Ómar Bragi Stefánsson frá UMFÍ, Sveinbjörn Kristjánsson frá SAMAN hópnum og fulltrúi 100 karla hópsins sem vakti m.a. athygli á nauðgunarmálum frá síðasta sumri. Fundurinn er öllum opinn en þátttökugjaldið, 1500 krónur, er með morgunverði sem hefst kl. 08.15. Skráning er fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 22. maí áhttp://naumattum.is/page/skraning

Fundarstjóri verður Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður.

Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica