Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda.
Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 12,7% fyrstu níu mánuðum ársins 2012 samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2011. Fjöldi tilkynninga var 5.800 fyrstu níu mánuði ársins 2012, en 6.644 fyrstu níu mánuði ársins 2011. Fleiri tilkynningar bárust um drengi, en stúlkur, en var hlutfall tilkynninga vegna drengja 54,0% fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2012. Kynjaskipting vegna tilkynninga í sískráningu liggur fyrir frá árinu 2012. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um tæplega 16% og rúmlega 4% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.
Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 40,9% tilkynninga fyrstu níu mánuði ársins 2012, en 45,6% fyrstu níu mánuði ársins 2011. Alls voru 35,5% tilkynninga fyrstu níu mánuði ársins 2012 vegna vanrækslu, en 30,8% fyrstu níu mánuði ársins 2011. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi fyrstu níu mánuði ársins 2012 var 22,9%, en 22,7% fyrstu níu mánuði ársins 2011. Hlutfall tilkynninga fyrstu níu mánuði árisins 2012 vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,7%, en 1% fyrstu níu mánuði ársins 2011.
Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 45 umsókn um MST fyrstu níu mánuði ársins 2012, en 55 umsóknir fyrstu níu mánuði ársins 2011. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.
Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu níu mánuði ársins 2012 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 49 fyrstu níu mánuði ársins 2012 en 65 fyrstu níu mánuði ársins 2011. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fækkaði úr 106 í 82 á umræddu tímabili.