Samanburður á fjölda tilkynninga fyrstu 9 mánuði 2010 og 2011

5 des. 2011

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu níu mánuði yfirstandandi árs miðað við sama tímabil árið 2010. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu níu mánuði áranna 2010 og 2011.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 5,5% fyrstu níu mánuði ársins 2011 samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2010. Fjöldi tilkynninga var 6.626 fyrstu níu mánuði ársins 2011 en 7.011 fyrstu níu mánuði ársins 2010. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 45,6% tilkynninga fyrstu níu mánuði ársins 2011, en 47,2% fyrstu níu mánuði ársins 2010. Alls voru 30,7% tilkynninga vegna vanrækslu fyrstu níu mánuði ársins 2011, en 31,4% fyrstu níu mánuði ársins 2010. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi var 22,7% fyrstu níu mánuði ársins 2011, en 21% fyrstu níu mánuði ársins 2010. Hlutfall tilkynninga vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 1,0% fyrstu níu mánuði ársins 2011, en 0,5% fyrstu níu mánuði ársins 2010.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 55 umsóknir um Fjölkerfameðferð (MST) fyrstu níu mánuði ársins 2011, en 59 umsóknir fyrstu níu mánuði ársins 2010. MST snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.

Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu níu mánuði ársins 2011 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 65 fyrstu níu mánuði ársins 2011 en 109 fyrstu níu mánuði ársins 2010. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fjölgaði úr 93 í 106 á umræddu tímabili.

Hér má sjá skýrsluna í heild og sundurliðun á samanburði vegna tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar varðandi umsóknir um þjónustu á vegum Barnaverndarstofu fyrir umrætt tímabil.

Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica