Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2009 og 2010

28 feb. 2011

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir árin 2009 og 2010. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2009 og 2010.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 1% á árinu 2010 samanborið við árið 2009. Fjöldi tilkynninga á árinu 2010 var 9.233, en 9.327 árið á undan. Í samanburði fyrstu 3 mánuði og fyrstu 6 mánuði áranna 2009 og 2010 var fjölgun tilkynninga milli ára um 3%, en um 1 % í samanburði á fyrstu 9 mánuðum áranna 2009 og 2010. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um tæplega 3%, en fjölgaði á landsbyggðinni um tæplega 3% þegar allt árið er skoðað. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 47,3% árið 2010, en 46,3% árið 2009. Alls voru 30,5% tilkynninga árið 2010 vegna vanrækslu, en 34,7% árið 2009. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi árið 2010 var 21.6%, en 18,5% árið 2009. Hlutfall tilkynninga árið 2010 vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,6%, en 0,4% árið 2009.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 77 umsóknir um Fjölkerfameðferð (MST) á árinu 2010, en 56 umsóknir á árinu 2009. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks. Nýtt MST meðferðarteymi tók til starfa í mars sl. og fjölgaði þerapistum þá úr fjórum í sex.

Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði á árinu 2010 miðað við árið á undan. Umsóknir voru 141 á árinu 2010 en 166 á árinu 2009. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fjölgaði úr 110 umsóknum í 113 umsóknir á umræddu tímabili.

Hér má sjá skýrsluna í heild og sundurliðun á samanburði vegna tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar varðandi umsóknir um þjónustu á vegum Barnaverndarstofu fyrir umrætt tímabil.


Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica