10. október - alþjóðageðheilbrigðisdagurinn

8 okt. 2010

Árlega er 10. október helgaður geðheilbrigðismálum um allan heim. Á Íslandi hefur í áranna rás verið haldið upp á daginn með margvíslegu móti og í ár verður haldið upp á daginn í göngugötunni í Mjódd. Þema ársins er: Geðheilsa og langvinn veikindi: þörf fyrir samfellda og samhæfða þjónustu.

Þema hvers árs er ákveðið með hliðsjón af samþykktum heimssamtaka um geðheilbrigði - WFMH: http://www.wfmh.org/

Sunnudaginn 10. október hefst dagskrá alþjóða geðheilbrigðisdagsins í göngugötunni í Mjódd, Breiðholti, kl. 13:00 og stendur til kl. 16:30. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á vefsíðunni: www.10okt.com.

Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica