Áhrif markvissrar íhlutununar á þróun andfélagslegrar hegðunar

13 jan. 2009

Freydís J. Freysteinsdóttir félagsráðgjafi (MSW, Phd) og félagsmálastjóri birti nýlega grein um rannsókn sína „Unglingar í vanda: Samanburður á unglingum með áhættuhegðun sem fara í langtímameðferð annars vegar og fá vægari úrræði hins vegar af hálfu barnaverndaryfirvalda“.

Í rannsókninni voru barnaverndarmál sem tilkynnt var um áhættuhegðun unglinga innihaldsgreind. Undir áhættuhegðun unglinga flokkast hegðun s.s. innbrot, skemmdarverk, vímuefnanotkun, útigangur, vændi og árásarhneigð. Bendir hún á að fjöldi rannsókna sýni fram á tengsl milli þess að hafa orðið þolandi misbrests í uppeldi þ.e. ofbeldi og/eða vanrækslu og þess að sýna áhættuhegðun. Þá gerir hún grein fyrir líkani Patterson o.fl. (1989) um þróun andfélagslegrar hegðunar og þróun innrætingar hjá börnum byggt á Kochanska (1995). Í rannsókninni var leitast við að kanna stöðu og aðstæður þeirra unglinga sem barnaverndarafskipti voru af.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til mikilvægi þess að grípa inn í eins fljótt og unnt er þegar barnaverndaryfirvöld fá tilkynningar um börn sem eru vanrækt og/eða beitt ofbeldi. Markviss íhlutun og stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra getur komið í veg fyrir að vandinn þróist áfram og verði verri. Greinina er að finna í Tímariti félagsráðgjafa bls. 5-16.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica