Málstofur um heimilisofbeldi
Málstofur sem Barnaverndarstofa heldur í samstarfi við Barnavernd Reykjavíkur og félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands verða sem fyrr síðasta mánudag hvers mánaðar klukkan 12:15 til 13:15 í fundarsal Barnaverndarstofu að Borgartúni 21. Upptökur af málstofunum verða aðgengilegar á heimasíðu Barnaverndarstofu. Fjalla málstofur vorsins um ofbeldi á heimilum.Fyrsta málstofan verður 26. janúar nk. þar mun Ingólfur V. Gíslason fjalla um ofbeldi í nánum samböndum en hann tók saman rit sem gefið var út af félags- og tryggingamálaráðuneytinu í lok árs 2008. Ritið „Ofbeldi í nánum samböndum“ er til sölu á Bóksölu Stúdenta en hægt er að nálgast það rafrænt á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
Mánudaginn 23. febrúar nk. kl. 12:15 verður Sigþrúður Guðmundsdóttir fostöðukona Kvennaathvarfsins með erindi um hugmyndafræði athvarfsins, stuðning við börn og samstarf við barnaverndaryfirvöld. Kvennaathvarfið á sér ekki hliðstæðu hér á landi en þar geta konur og börn sem búa við heimilisofbeldi komið til dvalar ef dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis af hálfu heimilismanna. Boðið er upp á símaráðgjöf allan sólarhringinn, ókeypis viðtöl og sjálfshjálparhópa. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Kvennaathvarfsins.
Á málstofu mánudaginn 30. mars nk. kl. 12:15 mun Eyrún Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á Neyðarmóttöku LSH fjalla um stuðning við konur sem verða fyrir ofbeldi á heimili og tilkynningar vegna gruns um að börn verði fyrir ofbeldi af hálfu foreldra. Upplýsingar um Neyðarmóttökuna má finna hér.
Málstofur í apríl og maí verða kynntar síðar.