Fræðslurit um ofbeldi í nánum samböndum

8 jan. 2009

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út fræðslurit um ofbeldi í nánum samböndum. Er það í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar frá september 2006 um ofbeldi gegn konum.

Fjallar ritið um ýmsar staðreyndir varðandi ofbeldi gegn konum í nánum samböndum, rannsóknir sem gerðar hafa verið, birtingarmyndir ofbeldisins og afleiðingar þess. Sérstakur kafli er um börn sem þolendur. Ritið er einkum ætlað til kennslu. Þá eru einnig gefin út fjögur rit með sama efni en til viðbótar kafli með það að markmiði að nýtast tilteknum stéttum í starfi, þ.e. efni fyrir starfsfólk félagsþjónustu, heilbrigðisstéttir, ljósmæður og lögreglu.

Ritin fimm má nálgast á heimasíðu ráðuneytisins www.felagsmalaraduneyti.is

Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica