Staða barnaverndarmála annan ársfjórðung 2006
Barnaverndarstofu bárust 43 umsóknir um meðferð á öðrum ársfjórðungi 2006. Á sama tíma í fyrra bárust 59 umsóknir. Barnaverndarstofu bárust auk þess 23 umsóknir um fóstur og voru flestar um tímabundið fóstur eða 78% allra umsókna. Auk þess bárust Barnaverndarstofu 15 umsóknir þeirra sem óskuðu eftir því að gerast fósturforeldrar. Flestar umsóknir komu frá fólki búsettu í Reykjavík og nágrenni. Fimm börn fóru í fóstur á vegum Martinswerk.Í Barnahúsi fóru fóru fram 48 rannsóknarviðtöl á öðrum ársfjórðungi, þar af 8 skýrslutökur eða 17% allra rannsóknarviðtala. Greiningar- og meðferðarviðtöl voru 29. Sex læknisskoðanir fóru fram í Barnahúsi á þessum tíma.
Á öðrum ársfjórðungi 2006 bárust alls 1.485 tilkynningar um 1.401 barn. Ef fjöldi tilkynninga er borinn saman við sama tíma í fyrra kemur í ljós að fjöldi tilkynninga hefur nánast staðið í stað milli ára.
Hér má sjá skýrslu um stöðu mála á öðrum ársfjórðungi.
Hér má sjá frekari skiptingu á tilkynningum til barnaverndarnefnda.