Staða mála fyrsta ársfjórðung 2006
Barnaverndarstofu bárust 51 umsókn um meðferð fyrstu þrjá mánuði ársins 2006. Á sama tíma í fyrra höfðu borist 44 umsóknir. Barnaverndarstofu bárust auk þess 40 umsóknir um fóstur og voru flestar um tímabundið fóstur eða 75% allra umsókna. Auk þess bárust Barnaverndarstofu 15 umsóknir þeirra sem óskuðu eftir því að gerast fósturforeldrar. Flestar umsóknir komu frá Reykjavík og nágrenni. Þrjú börn fóru í fóstur á vegum Martinswerk.Í Barnahúsi fóru fóru fram 56 rannsóknarviðtöl á fyrsta ársfjórðungi, þar af 10 skýrslutökur eða 17,9% allra rannsóknarviðtala. Greiningar- og meðferðarviðtöl voru 25. Fjórar læknisskoðanir fóru fram í Barnahúsi á þessum tíma.
Á fyrsta ársfjórðungi 2006 bárust alls 1.675 tilkynningar um 1.615 börn. Ef fjöldi tilkynninga er borinn saman við fyrstu þrjá mánuðina í fyrra kemur í ljós að þeim hefur fjölgað um tæp 27% milli ára.
Hér má sjá skýrslu yfir stöðu mála á fyrsta ársfjórðungi.
Hér má sjá frekari skiptingu á tilkynningum til barnaverndarnefnda.