Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda í nóvember 2005
Í nóvember bárust barnaverndarnefndum landsins 480 tilkynningar varðandi 461 barrn. 65% tilkynninganna (313) komu frá höfuðborgarsvæði en 35% frá landsbyggðinni (167). Af þessum 480 tilkynningum bárust 25 tilkynningar í gegnum neyðarlínuna 1-1-2.Ástæður tilkynninga skiptust þannig að 34,2% voru vegna vanrækslu, 14,8% vegna ofbeldis, 51% vegna áhættuhegðunar barna og 0% vegna þess að heilsu eða líf ófædds barns var í hættu.
Flestar tilkynningar komu frá lögreglu og voru 48% allra tilkynninga.
Tilkynningum fækkaði umtalsvert frá því í september en þá voru þær 629.
Hér má sjá nánari sundurliðun á tilkynningum í nóvember