Greining á tölulegum upplýsingum síðustu níu mánaða

5 nóv. 2020

Barnaverndarstofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu fyrstu níu mánuði 2020 og borið saman við sama tímabil árin 2019 og 2018. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í sérstakri skýrslu sem gefin er út árlega. Einnig er að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á fyrstu níu mánuðum áranna 2018, 2019 og 2020.

Helstu niðurstöður skýrslunnar eru eftirfarandi:

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgar

Fjöldi tilkynninga á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 var 9.570 tilkynningar og fjölgaði þeim um 14,3% á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 miðað við sama tímabil árið á undan. Tilkynningum fjölgaði í Reykjavík, höfuðborgarsvæði sem og á landsbyggðinni, miðað við árið á undan. Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 var 7.552 börn (samanlagður heildarfjöldi barna í hverjum mánuði fyrir sig).

Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 var 28,7%. Er það stærri hluti af heildartilkynningum en árin tvö á undan. Hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar barna var 26,6% á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 sem er lægra hlutfall en síðustu tvö ár.

Fjöldi tilkynninga þar sem tilkynnt var um vanrækslu og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu voru 1.550 og er það 16.2% allra tilkynninga sem hafa borist á fyrstu níu mánuðum ársins 2020. Er það stærra hlutfall en barst á fyrstu níu mánuðum áranna á undan. Fjöldi tilkynninga um líkamlegt ofbeldi var 634 á fyrstu níu mánuðum ársins 2020. Eru það 31,8% fleiri tilkynningar en bárust fyrstu níu mánuði ársins 2019 vegna líkamlegs ofbeldis.

Flestar tilkynningar bárust frá lögreglu, eða 38,8% tilkynninga á fyrstu níu mánuðum ársins 2020, hlutfallið var 44,0% fyrir sama tímabil árið á undan og 43,7% á fyrstu níu mánuðum ársins 2018. Þá hefur verið mikil fjölgun tilkynninga frá nágrönnum á milli ára. Í ár bárust 802 tilkynningar frá nágrönnum, er það 39.7% fleiri tilkynningar en bárust í fyrra.

Umsóknum um meðferðarúrræði Barnaverndarstofu fjölgar

Umsóknum um meðferðarúrræði á vegum Barnaverndarstofu fjölgaði á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 miðað við sama tímabil árið á undan úr 103 umsóknum í 117. Flestar umsóknir bárust um fjölkerfameðferð (MST). Fækkun hefur verið á umsóknum vegna annarra meðferðarheimila en Stuðla, en á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 bárust 9 umsóknir, samanborið við 15 árið á sama tímabili ársins á undan, og 17 árið 2018.

Beiðnum um tímabundið fóstur fækkaði miðað við árið á undan en beiðnum um varanlegt fóstur fjölgar.

Veruleg fjölgun skýrslutaka í Barnahúsi

Rannsóknarviðtölum fyrstu níu mánuði ársins fjölgaði um tæp 40% miðað við sama tíma í fyrra og voru 228 í ár. Má skýra stóran hluta þessarar aukningu vegna aukins fjölda skýrslutaka en skýrslutökur fyrir dómi voru 149 á fyrstu níu mánuðum ársins 2020. Er það fjölgun frá árunum á undan þegar þær voru rétt um 90 hvort ár fyrir sig. Fjöldi barna sem fór í greiningar- og meðferðarviðtöl í Barnahúsi á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 var 99 börn. Er það fjölgun frá árunum á undan.

Vistunum og vistunardögum á lokaðri deild Stuðla fækkar

Vistunum á lokaðri deild á Stuðlum fækkaði úr 159 í 124 á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 miðað við sama tímabil árið á undan. Vistunardögum fækkaði að sama skapi úr 883 dögum á fyrstu níu mánuðum ársins 2019 í 597 daga fyrir sama tímabil á árinu 2020. Alls komu 58 börn á lokaða deild á fyrstu níu mánuðum ársins 2020, en þau voru 65 fyrir sama tímabil á árinu 2019.

Smelltu hér til að skoða skýrsluna


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica