Nýjar rannsóknarniðustöður sýna góða frammistöðu Íslendinga á sviði innleiðingar gagnreyndra meðferðarúrræða vegna aðlögunarvanda barna

Þetta kemur fram í grein í vísindatímaritinu ,,JOURNAL OF CLINICAL CHILD & ADOLECENT PSYCHOLOGY".

14 jún. 2018

Greinin, sem ber yfirheitið „Implementing an Evidence-Based Intervention for Children in Europe: Evaluating the Full-Transfer Approach“, fjallar um innleiðingu gagnreyndrar meðferðar (Parent Management Training – Oregon aðferð: PMTO) til að fást við aðlögunarvanda barna, einkum hegðunarerfiðleika, í þremur Evrópulöndum; Íslandi, Danmörku og Hollandi. Þrír höfundanna eru Íslendingar, þau Margrét Sigmarsdóttir, Edda Vikar Guðmundsdóttir og Örnólfur Thorlacius.

Talsverð vakning er meðal stjórnmálamanna, fagfólks og almennings um gildi markvissra aðgerða til að takast á við aðlögunarvanda barna. Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að nýta vel rannsakaðar og viðurkenndar aðferðir til verksins. Algengt er að aðferðir af þessum toga séu innleiddar með því að þjálfa fagaðila og í framhaldinu hefja meðferð en að viðhaldi til lengri tíma sé ábótavant og því lítill ávinningur af herferðinni þegar upp er staðið.
Í þessari grein kemur fram að í Evrópulöndunum þremur viðhelst og eykst notkun aðferðarinnar yfir lengri tíma, þjónustan er í háum gæðaflokki og í dag er aðferðin hluti af sérfræðiþjónustu þessara landa.
Öll löndin fylgja skipulögðu ferli varðandi handleiðslu, þjálfun og gæðaeftirlit en eru að öðru leyti sjálfstæð í sinni vinnu. Gagnreynda meðferðarúrræðið PMTO er þróað í Oregon í Bandaríkjunum þar sem alþjóðleg miðstöð úrræðissins er til staðar. Á Íslandi eru flestir meðferðaraðilar miðað við íbúafjölda og miðstöð aðferðarinnar er hjá Barnaverndarstofu.

Hér er hægt að finna umrædda grein

Hér er fréttin á heimasíðu PMTO á Íslandi


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica