Fréttir: 2021 (Síða 2)
Aðgerðir stjórnvalda gegn stafrænu ofbeldi gegn börnum
Miðvikudaginn 28. apríl n.k. verður haldinn fundur þar sem farið verður yfir aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn kynferðislegu / stafrænu ofbeldi gegn börnum hér á landi. Aðgerðirnar fela m.a. í sér aldursmiðaða fræðslu og forvarnir, þjálfun starfsmanna innan réttargæslukerfisins, endurskoðun á verklagi og úrbætur í upplýsingamiðlun.
Hér má nálgast tengil á viðburðinn sem verður á facebook.
Viðbrögð Barnaverndarstofu vegna sóttvarnaraðgerða. Afgreiðslu Barnaverndarstofu í Borgartúni 21 verður lokað frá og með 25 mars til 15 apríl. Símsvörun í 530 2600 verður frá kl: 09 – 12 og 13 - 15. Áfram er hægt að senda póst á bvs@bvs.is.
Afgreiðslu Barnaverndarstofu í Borgartúni 21 verður lokað frá og með deginum í dag til 15 apríl. Símsvörun í 530 2600 verður frá kl: 09 – 12 og 13 - 15. Áfram verður hægt að ná í einstaka starfsmenn með tölvupósti og ávallt er hægt að senda póst á bvs@bvs.is Ráðgjöf mun að mestu fara fram í gegnum síma, netpóst og fjarfundarbúnað. Áfram verða símatímar fyrir almenning þriðjudaga og fimmtudaga kl 11 - 12.
Barnaverndarstofa biður konur afsökunar sem voru vistaðar á Laugalandi (áður Varpholt)
Hópur kvenna, sem vistaður var á meðferðarheimilinu á Laugalandi (áður Varpholt), steig nýverið fram og lýsti slæmri reynslu sinni af heimilinu undir stjórn fyrri rekstraraðila á árunum 1997 – 2007. Barnaverndarstofa biður þær konur, sem vistaðar voru á heimilinu, afsökunar á að ekki hafi verið brugðist betur við þeim upplýsingum sem stofunni bárust varðandi starfsemi heimilisins.
112-dagurinn – öryggi og velferð barna og ungmenna
Vitundarvakning
um öryggi og velferð barna og ungmenna
112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggi og velferð barna og ungmenna, enda fjölgaði tilkynningum til barnaverndarnefnda gríðarlega á síðasta ári.
Greining á tölulegum upplýsingum fyrir árið 2020
Barnaverndarstofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu fyrir allt árið 2020 og borið saman við tölur frá árunum 2019 og 2018. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í sérstakri skýrslu sem gefin er út árlega. Einnig er að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu árin 2018, 2019 og 2020.
Greining á tölulegum upplýsingum frá barnaverndarnefndum
Tilgangur greiningarinnar er að leggja mat á hvort og þá hvaða áhrif COVID-19 faraldurinn hefur haft á tilkynningar til barnaverndarnefnda. Sambærilegar greiningar hafa áður verið gerðar vegna mars til október 2020.
- Fyrri síða
- Næsta síða
Nýjustu fréttir
Við erum að flytja vefinn okkar
Við erum smám saman að flytja vefinn okkar yfir á island.is og þar er að finna það helsta sem er á döfinni hjá okkur og allar nýjustu upplýsingar. Fara á nýjan vef.
Málþing - Stuðningur við börn á flótta í íslensku skólakerfi. Í tilefni af útgáfu fræðslunnar fór fram mikilvægt málþing um börn á flótta og íslenskt skólakerfi þar sem reynslumiklir aðilar tóku til máls.
Börn á Flótta – Málþing
UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) hafa í samstarfi unnið fræðslumyndband um börn á flótta.
Fræðsluefnið um börn á flótta. Smellið hér til að nálgast fræðsluna
Lesa meiraStöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar
Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.
Lesa meira