Fréttir: febrúar 2013 (Síða 2)
Ekki gera ekki neitt - algengt að kynferðisbrotamál séu þögguð niður innan fjölskyldunnar
,,Það er ekki bara skynsamlegt heldur er það skylda að tilkynna svona mál til barnaverndarnefndar" segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, í viðtali í DV þann 6. febrúar, aðspurður hvernig best sé að taka á því þegar misnotkunarmál koma upp í fjölskyldum.
Heildarfjöldi mála í Barnahúsi þrefaldaðist í janúar!
Mikið álag hefur verið á starfsfólki Barnahúss í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Mjög margir foreldrar og skólar hafa haft samband og eru órólegir vegna barna í umhverfi þeirra. Tæplega þreföldun var á málum sem bárust Barnahúsi í janúarmánuði. Barnahús fékk til sín eða var þegar með 51 mál til meðferðar í janúarmánuði. Af þeim eru 19 mál í bið eftir úrvinnslu. Má geta þess að allt árið í fyrra bárust Barnahúsi 279 mál eða að meðaltali 23 mál í hverjum mánuði.
Síða 2 af 2
- Fyrri síða
- Næsta síða
Nýjustu fréttir
![](/media/almenningur/large/farsaeld_barna_frett.001.jpeg)
Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar
Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.
Lesa meira![Utlit-a-namskeid-_agust.001-16](/media/uncategorized/large/utlit-a-namskeid-_agust.001-16.jpeg)
Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023
Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.
Lesa meira![](/media/almenningur/large/img_0856.jpg)
Sexan stuttmyndasamkeppni
Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024.
Lesa meira