Fylgdarlaus börn á flótta

Námskeið fyrir vistforeldra og fósturforeldra

17 okt. 2016

Barnaverndarstofa býður upp á námskeið dagana 27. október og 3. nóvember 2016 fyrir þá sem hafa áhuga á að taka fylgdarlaus börn á flótta inn á heimili sín. 

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem höfðu samband við Barnaverndarstofu í kjölfar auglýsingar stofunnar

Þeir sem hafa áhuga á að bætast í hópinn sem hugsanlegir umsækjendur um að taka á móti börnum í slíkum aðstæðum eru einnig velkomnir.

Tilgangur námskeiðs er að undirbúa umsækjendur undir hlutverkið með því að fræða þá um aðstæður og þarfir flóttabarna auk verklags og þjónustu á vegum ríkis og sveitarfélaga. Á námskeiðinu gefst þátttakendum einnig tækifæri til að meta eigin getu og aðstæður til að taka sér hlutverkið. Hér má nálgast dagskrá námskeiðs og hér er umfjöllun um fylgdarlaus börn á flótta og kröfur sem gerðar eru til vistforeldra og fósturforeldra. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Barnaverndarstofu í síma 5302600 eða tölvupósti bvs@bvs.is


Nýjustu fréttir

15. maí 2024 : Stöðuskýrsla til ráðherra á þriðja ári innleiðingar

Frá því að lögin um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt hefur markvisst verið unnið að innleiðingu þeirra á vegum ríkis og sveitarfélaga um allt land.

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica