Samanburður á fjölda tilkynninga fyrstu 6 mánuði 2010 og 2011

14 okt. 2011

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu 6 mánuði yfirstandandi árs miðað við sama tímabil árið 2010. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2010 og 2011.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um tæplega 10% fyrstu sex mánuði ársins 2011 samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2010. Fjöldi tilkynninga var 4.459 fyrstu sex mánuði ársins 2011 en 4.949 fyrstu sex mánuði ársins 2010. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 46,2% tilkynninga fyrstu sex mánuði ársins 2011, en 46,8% fyrstu sex mánuði ársins 2010. Alls voru 29,9% tilkynninga vegna vanrækslu á börnum fyrstu sex mánuði ársins 2011, en 31,7% fyrstu sex mánuði ársins 2010. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi var 22,9% fyrstu sex mánuði ársins 2011, en 21,0% fyrstu sex mánuði ársins 2010. Hlutfall tilkynninga vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 1,0% fyrstu sex mánuði ársins 2011, en 0,5% fyrstu sex mánuði ársins 2010.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 40 umsóknir um Fjölkerfameðferð (MST) fyrstu sex mánuði ársins 2011, en 42 umsóknir fyrstu sex mánuði ársins 2010. MST snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.

Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu sex mánuði ársins 2011 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 49 fyrstu sex mánuði ársins 2011 en 75 fyrstu sex mánuði ársins 2010. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fjölgaði úr 63 í 74 á umræddu tímabili.

Hér má sjá skýrsluna í heild og sundurliðun á samanburði vegna tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar varðandi umsóknir um þjónustu á vegum Barnaverndarstofu fyrir umrætt tímabil.

Nýjustu fréttir

26. jún. 2023 : Upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga

Barna- og fjölskyldustofa hefur ásamt nokkrum öðrum aðilum tekið saman upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka sem standa að samkomum, viðburðum og mannamótum.

Í þessu upplýsingabréfi er að finna gagnlegar upplýsingar um ráðningar starfsfólks og sjálfboðaliða, um viðbrögð við hlutum sem geta komið upp og hvert er hægt að leita eftir frekari upplýsingum og nálgast fræðslu.

Lesa meira

16. jún. 2023 : Myndband um íslenska Barnahúsið

Evrópuráðið (Council of Europe) birti þann 1. júní s.l. myndband um Íslenska Barnahúsið. 

Myndbandið má nálgast hér


Þetta vefsvæði byggir á Eplica